Húlladúllan er Unnur María Máney Bergsveinsdóttir. Hún er sjálfstætt starfandi sirkuslistakona, búsett á Ólafsfirði. Hún hefur starfað með Sirkus Íslands og breska sirkusnum Let’s Circus og hefur komið fram á ýmsum sirkussýningum í Frakklandi, Bretlandi og í Mexíkó. Auk þess að leika listir sínar kennir hún bæði börnum og fullorðnum hinar ýmsu sirkuslistir, með sérstakri áherslu á húlla, akró, loftfimleika og jafnvægiskúnstir. Hún lauk húllakennaranámi frá Live Love Hoop í Bristol árið 2016 og alþjóðlegu Social Circus kennaranámi á vegum Caravan sirkussamtakanna og Evrópusambandsins árið 2019. Unnur Máney starfar einnig með kabarettinum Drag-Súgi og með Reykjavík Kabarett og er stofnandi Akró Ísland hópsins
Húlladúllan býður upp á sirkusskemmtanir af margvíslegu tagi. Hvort sem þú ert að skipuleggja vorhátíð, 17. júní hátíðarhöld, barnaafmæli, ættarmót, árshátíð, fjölskyldudag, hópefli, góðgerðarbingó, bæjarhátíð eða afþreyingu af öðru tagi þá er öruggt að Húlladúllan getur gert góða skemmtun enn betri.
Viljir þú bjóða upp á eldskemmtun þá er heppnin með þér því Húlladúllan er ein af fáum eldlistamönnum landsins.
árshátíðir, hátíðir, einkasamkvæmi, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, gæsa- og steggjapartý, brúðkaup, afmæli, barnaafmæli
Húlladúllan er skemmtun fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.