Skipuleggðu allan viðburðinn á einum stað

Finndu, berðu saman og bókaðu þjónustuaðila

Hvað er ARVO

ARVO er íslenskt markaðstorg og bókunarkerfi fyrir viðburði. Hér finna þeir sem standa fyrir brúðkaupi, afmæli, fyrirtækjaviðburði eða minningarathöfn þá þjónustuaðila sem þeir þurfa, senda fyrirspurn og fá tilboð til baka. Þjónustuaðilar eru skráðir í öllum landshlutum og í dag eru 505 sýnilegir á vefnum. Það kostar skipuleggjanda ekkert að nota ARVO, engin þóknun er tekin af bókun og verðið sem þú semur um við þjónustuaðilann er það sem þú greiðir.

Á ARVO eru 133 veislustaðir með 192 sölum. Allir eru samþykktir af ARVO áður en þeir birtast og hægt er að senda þeim fyrirspurn beint á ARVO.

Þetta eru salir og veitingaþjónusta, ljósmyndarar og tónlistarfólk, skreytingar, hár og förðun, akstursþjónusta, tækjaleiga og starfsfólk á staðinn. Fólk bókar hér fyrir brúðkaup, stórafmæli, fermingar, árshátíðir og erfidrykkjur.

Þjónustuaðilar á ARVO

Þetta er brot af því sem er skráð núna. Hver síða sýnir myndir, verð frá og hvaða svæði viðkomandi þjónar.

Sjá alla þjónustuaðila

Frá hugmynd að bókun sem verður að veislu

Búðu til viðburðinn þinn

Skráðu dagsetningu, stað og fjölda gesta. Sendu rafræn boð og sjáðu hverjir hafa svarað.

Þú skráir dagsetningu, staðsetningu og fjölda gesta og velur svo þá þjónustuaðila sem þú vilt heyra frá. Sama fyrirspurn getur farið til fleiri en eins, þannig að þú bíður ekki á einum.

Fáðu tillögur og berðu saman

Sjáðu tillögur að þjónustuaðilum innan kostnaðaráætlunar, berðu saman tilboð og fylgstu með kostnaði í rauntíma.

Tilboðin koma inn í kerfið, ekki í tölvupósthólfið þitt, með verði, því sem er innifalið og skilmálum. Þú sérð þau hlið við hlið og getur spurt út í hvað sem er áður en þú svarar. Svari þjónustuaðili ekki sendir ARVO honum áminningu.

Bókaðu og haltu utan um allt

Sendu fyrirspurn, samþykktu tilboð og haltu utan um samninga, greiðslur og samskipti.

Þegar þú samþykkir tilboð velur þú greiðslumáta: kortagreiðsla, millifærsla, krafa í banka eða reiðufé á staðnum. Reikningar, kvittanir og öll samskipti liggja hjá bókuninni. Fyrirspurn sem er ekki samþykkt getur þú dregið til baka sjálfur, en eftir samþykki er það þjónustuaðilinn sem aflýsir, og það sem þegar hefur verið greitt gerið þið upp á milli ykkar.

Allt sem þarf, frá fyrstu fyrirspurn til síðasta reiknings

Þú sérð hvað hlutirnir kosta áður en þú bókar, og hver bókun skilur eftir sig slóð sem þú getur flett upp.

Fyrir þjónustuaðila

ARVO er ekki listi yfir fyrirtæki. Þú færð vinnukerfi þar sem þú sérð um allar bókanir á einum stað. Viðskiptavinurinn fylgist með sömu bókun sín megin.

Fyrirspurnir og tilboð á einum stað

Allar fyrirspurnir koma í sama pósthólf. Þú svarar, sendir tilboð með verði og skilmálum og sérð hvort það hefur verið opnað. Ekkert týnist í tölvupósti.

Viðskiptavinir og verkefni

Hver fyrirspurn verður að viðskiptavini með sögu: fyrri bókanir, samskipti og athugasemdir. Verkefnalisti með ábyrgðarmanni og skiladegi fylgir bókuninni.

Dagatal sem talar við Google

Bókanir fara í Google-dagatalið þitt, og uppteknir dagar þaðan loka á móti í ARVO. Þannig tekur þú ekki við tveimur veislum á sama degi.

Reikningar sjálfkrafa í bókhaldið

Reikningur fer í Payday eða DK Plus án þess að þú sláir hann inn aftur, og staða hans uppfærist í ARVO þegar hann er greiddur.

Greiðslur sem þú sérð

Þú getur fylgst með hvað er greitt, hvað er ógreitt og hvenær greiðslan kom inn hvort sem það eru kortagreiðslur, millifærslur eða kröfur í banka.

Miðasala með kortagreiðslu

Selja má miða á viðburði með korti, með fleiri en einni miðategund og aukavali, og skanna þá í hurðinni með síma.

Eigin vefsíða á eigin nafni

Þú færð vefsíðu sem má setja á þitt eigið vefsvæði, með myndum, verðum og bókunarhnappi sem skrifar beint inn í ARVO.

Póstlisti

Þeir sem hafa bókað hjá þér eða keypt miða fara á póstlista sem þú sendir á úr kerfinu.

Uppkast frá ARVO

Kerfið skrifar uppkast að svari eða tilboði út frá fyrirspurninni og þínum eigin verðum. Þú lest yfir og sendir, eða skrifar sjálfur frá grunni.

Aðgangur fyrir starfsfólkið

Fleiri en einn geta unnið í sama aðgangi, hver með sín réttindi.

Tengt við: Payday, DK Plus, Rapyd, Teya, Google Calendar

Eigin síða fyrir viðburðinn þinn

Gestirnir fá eina síðu með öllu sem þeir þurfa að vita.

Rafrænt boðskort með RSVP

Gestir staðfesta mætingu og svara spurningum

Sjálfvirkar áminningar til gesta

Áminning fer sjálfkrafa á gestina fyrir viðburðinn.

QR aðgangsmiði

Einfalt innskráningarferli á staðnum

Sameiginlegt myndaalbúm fyrir gesti

Gestir deila myndum beint úr símanum

Spurt og svarað

Hvað kostar að nota ARVO?

Ekkert fyrir þann sem skipuleggur. Þú stofnar aðgang, sendir fyrirspurnir og tekur við tilboðum án þess að greiða ARVO neitt, og engin þóknun er tekin af bókuninni. Þú greiðir þjónustuaðilanum það verð sem þið semjið um.

Hvernig bóka ég þjónustuaðila?

Þú finnur þjónustuaðilann á ARVO og sendir fyrirspurn með dagsetningu, staðsetningu og fjölda gesta. Hann sendir tilboð til baka með verði, því sem er innifalið og skilmálum, þú samþykkir það og bókunin er staðfest. Ferlið er fyrirspurn, tilboð, samþykki og staðfesting.

Hvenær og hvernig greiði ég?

Þú velur greiðslumáta þegar þú samþykkir tilboðið. Í boði eru kortagreiðsla, millifærsla, krafa í banka og reiðufé á staðnum, og það er þjónustuaðilinn sem ákveður hvaða leiðir hann tekur við. Kortagreiðsla fer fram í kerfinu, millifærsla og krafa eru merktar þegar þær koma inn, og reiðufé er greitt á staðnum.

Get ég hætt við?

Fyrirspurn sem hefur ekki verið samþykkt getur þú dregið til baka sjálfur, og þjónustuaðilinn fær boð um það. Eftir að tilboð hefur verið samþykkt getur þú ekki afturkallað bókunina einn, þá talar þú við þjónustuaðilann og hann aflýsir. Hafi eitthvað þegar verið greitt er það gert upp milli þín og hans, ARVO endurgreiðir ekki sjálfkrafa.

Hvað gerist ef þjónustuaðili svarar ekki?

ARVO sendir honum áminningu og þú sérð í kerfinu hvort fyrirspurnin hefur verið opnuð. Þú þarft ekki að bíða á einum, sama fyrirspurn getur farið til fleiri þjónustuaðila í sama flokki og þú velur svo úr þeim tilboðum sem koma.

Uppfært 15.09.2026