Hvað kostar fermingarveisla 2027?

Birt 02.11.2026

Kostnaður við fermingarveislu ræðst mest af þremur liðum: salnum, veitingunum og því hvort þið fáið tónlist eða skemmtun. Hér er hvað salur og DJ kosta á ARVO, reiknað úr verðum sem salirnir og plötusnúðarnir hafa sjálfir skráð, og hvað hefur mest áhrif á heildina.

Salurinn

Leiga á sal er oftast stærsti einstaki liðurinn. Fermingarveislur eru haldnar um helgar á vorin og flestar fjölskyldur vilja sömu dagana, svo salir sem henta fermingum bókast snemma. Verðið fer eftir stærð salarins, hversu lengi þið hafið hann og hvað fylgir: borð og stólar, dúkar, eldhús og þrif.

Margir salir leyfa að koma með eigin veitingar og sumir taka gjald fyrir það. Ef þið ætlið að sjá um matinn sjálf eða kaupa hann annars staðar frá er gott að spyrja um það strax, því það breytir samanburðinum.

Veitingar

Veitingar eru oft jafn stór liður og salurinn. Veisluþjónustur verðleggja ýmist á mann eða fyrir veisluna í heild, svo upphafsverð þeirra eru ekki sambærileg nema vitað sé við hvað er miðað. Þess vegna birtum við ekki tölur fyrir þennan lið.

Spurðu um verð á mann miðað við fjölda gesta, hvort framreiðsla og borðbúnaður fylgi og hvort fermingartertan sé innifalin eða keypt sér.

Tónlist og skemmtun

Í fermingarveislu er tónlistin oftast lágstemmd yfir daginn, en sumar fjölskyldur fá DJ eða trúbador til að halda uppi stemningunni seinni partinn. Bókunin er yfirleitt styttri en á árshátíð eða í brúðkaupi, svo spurðu um verð fyrir þann tíma sem þið þurfið.

Svona heldur þú kostnaðinum í skefjum

Hvað kostar salur fyrir fermingu

Upphafsverð sala sem taka við fermingarveislum, eins og salirnir hafa sjálfir skráð þau á ARVO. Upphafsverð er ekki endanlegt verð: það segir hvar salurinn byrjar.

Tölurnar í þessari grein eru byggðar á 33 skráðum verðum á ARVO í nóvember 2026.

Flest skráð upphafsverð eru á bilinu 50.000 kr. til 200.000 kr. og miðgildið er 100.000 kr. 21 þjónustuaðili er með skráð verð á ARVO.

Lægstu skráðu upphafsverðin

Salur fyrir fermingu

Hvað kostar DJ í fermingarveislu

Upphafsverð plötusnúða á ARVO, eins og þeir hafa sjálfir skráð þau. Verðið miðast oftast við heilt kvöld, svo styttri bókun í fermingarveislu getur kostað minna.

Flest skráð upphafsverð eru á bilinu 30.000 kr. til 150.000 kr. og miðgildið er 60.000 kr. 12 þjónustuaðilar eru með skráð verð á ARVO.

Lægstu skráðu upphafsverðin

DJ og plötusnúðar

Hvenær þarf að bóka sal fyrir fermingu?

Sem fyrst eftir að fermingardagurinn liggur fyrir. Vinsælustu helgarnar á vorin fara fyrst, og salir sem henta fermingarveislum bókast oft með góðum fyrirvara.

Er ódýrara að halda fermingarveisluna heima?

Það sparar salarleiguna, en á móti kemur pláss, borðbúnaður og frágangur. Margar fjölskyldur bera saman sal þar sem koma má með eigin veitingar og sal þar sem veitingar fylgja, og velja svo.

Kostar eitthvað að senda fyrirspurn á ARVO?

Nei. Það kostar ekkert fyrir þann sem skipuleggur veisluna að senda fyrirspurnir, taka við tilboðum og bóka á ARVO.

Á ARVO

Sendu fyrirspurn á nokkra sali í einu.

Höfundur: Bergur Hjaltested, stofnandi ARVO

Fleiri greinar