Verð plötusnúðs fer eftir þrennu: hversu lengi hann spilar, hvað hann kemur með af búnaði og hvað ferðin á staðinn kostar. Sömu tvær tölur geta þýtt allt annað ef önnur er fyrir fjóra klukkutíma með hljóðkerfi og ljósum og hin fyrir tvo klukkutíma þar sem salurinn leggur til kerfið.
Það sem skilur tilboð að er nær alltaf búnaðurinn og tíminn, ekki tónlistin. Spyrðu hvort hljóðkerfið fylgir, hversu stórt það er miðað við gestafjöldann, og hvort ljós eða reykvél eru inni í verðinu.
Dagsetningin er fyrsti þátturinn. Laugardagar á háannatíma og vikurnar fyrir jól eru dýrastar, því þá keppa árshátíðir og brúðkaup um sömu plötusnúðana.
Stærð salarins er annar. Hljóðkerfi sem virkar fyrir fimmtíu manns er ekki það sama og kerfi sem á að fylla stóran sal, og það er hluti af verðinu hvort hann kemur með það rétta.
Loks ræður umfangið. Brúðkaup þar sem hann spilar undir athöfninni, í fordrykknum og á dansleiknum er lengri vinnudagur en dansleikur eftir kvöldmat, og verðlagt eftir því.
Sendu fyrirspurn með dagsetningu, sal, gestafjölda og þeim tíma sem þú vilt að hann spili. Hann svarar með tilboði, þú samþykkir tilboðið og skilmálana og greiðir með korti, millifærslu, kröfu eða reiðufé eftir því hvað hann tekur við. Þú getur sent sömu fyrirspurn á fleiri en einn í einu og borið tilboðin saman á einum stað.
Tölurnar hér eru reiknaðar úr þeim upphafsverðum sem plötusnúðarnir hafa sjálfir skráð á ARVO. Upphafsverð er ekki endanlegt verð: það segir hvar þeir byrja.
Skráð upphafsverð byrjar í 10.000 kr. og miðgildið er 50.000 kr. 10 þjónustuaðilar eru með skráð verð á ARVO.
Fyrir brúðkaup á sumrin og árshátíðir í nóvember og desember er eðlilegt að bóka mörgum mánuðum fyrir. Utan þeirra vikna er meira svigrúm, en dagsetningin er alltaf það fyrsta sem klárast.
Hjá mörgum, en ekki hjá öllum, og stærðin þarf að passa við salinn. Ef salurinn er þegar með kerfi getur það lækkað verðið, svo það er þess virði að spyrja bæði salinn og plötusnúðinn.
Nær alltaf. Flestir vilja fá bæði það sem þú vilt heyra og það sem þú vilt ekki heyra, og hafa það með í undirbúningnum.
Sendu fyrirspurn á nokkra plötusnúða í einu.