Hvað kostar veislusalur?

Birt 10.09.2026

Leiguverð veislusala er ekki eitt verð heldur nokkrir liðir sem raðast saman: salurinn sjálfur, tíminn sem þú fær hann, borð og stólar, þrif og hvort veitingar fylgja eða hvort þú kemur með þær sjálfur. Hér er hvað liggur að baki verðinu og hvernig þú fær sambærileg tilboð frá fleiri en einum sal.

Hvað er innifalið í leiguverðinu

Sumir salir leigja rýmið eitt og sér, aðrir eru með borð, stóla, dúka, hljóðkerfi og þrif inni í verðinu. Þetta er stærsta ástæðan fyrir því að tvö tilboð sem líta eins út geta verið ósambærileg, svo það fyrsta sem þarf að fá skýrt er hvað fylgir.

Hvað hefur mest áhrif á verðið

Dagsetningin ræður miklu. Laugardagur í maí og júní er dýrasti tíminn hjá flestum sölum því fermingar og brúðkaup keppa um sömu dagana, en sami salur getur verið töluvert ódýrari á virkum degi eða utan háannatíma.

Fjöldi gesta ræður hinu. Salur sem tekur hundrað manns í sæti er annað verð en salur sem tekur tvö hundruð, og margir salir hafa lágmarksverð sem gildir þótt gestirnir séu færri. Ef þú ert á milli tveggja stærða er þess virði að spyrja hvort minni salur í sama húsi sé í boði.

Loks skiptir máli hvort salurinn selur þér veitingarnar líka. Hús sem er í raun veitingahús setur oft lægra leiguverð og gerir upp á veitingunum, á meðan salur sem leyfir eigin veitingar tekur allt í leigunni. Hvorugt er dýrara í sjálfu sér, en þau eru ekki sambærileg fyrr en þú leggur veitingarnar við.

Hvernig þú berð saman tilboð

Reiknaðu alltaf verðið á hvern gest, með veitingum, og spyrðu hvort virðisaukaskattur er inni í tölunni. Spyrðu líka um staðfestingargjald og hvenær því er hægt að breyta eða hætta við, því skilmálarnir eru jafn mikill hluti tilboðsins og verðið.

Sendu sömu spurningarnar á alla sali sem þú ert að skoða. Á ARVO sendir þú eina fyrirspurn á nokkra sali í einu, fær tilboðin á einn stað og sérð þau hlið við hlið með sömu upplýsingum.

Hvernig bókunin gengur fyrir sig

Ferlið er alltaf það sama: þú sendir fyrirspurn, salurinn svarar með tilboði, þú samþykkir tilboðið og skilmálana og greiðir með korti, millifærslu, kröfu í banka eða reiðufé eftir því hvað salurinn tekur við. Fyrir skipuleggjandann kostar ekkert að nota ARVO.

Skráð upphafsverð á ARVO

Tölurnar hér eru reiknaðar úr þeim upphafsverðum sem salirnir hafa sjálfir skráð á ARVO. Upphafsverð er ekki endanlegt verð: það segir hvar salurinn byrjar.

Skráð upphafsverð byrjar í 500 kr. og miðgildið er 100.000 kr. 41 þjónustuaðili er með skráð verð á ARVO.

Lægstu skráðu upphafsverðin

Veislusalir

Er ódýrara að leigja sal á virkum degi?

Oftast, já. Laugardagar á háannatíma eru dýrastir hjá flestum sölum, og sami salur getur verið ódýrari á virkum degi eða utan vertíðar. Verðið er samt alltaf salarins að ákveða, svo spyrðu hann beint.

Þarf ég að staðfesta með greiðslu?

Það fer eftir salnum. Margir taka staðfestingargjald og gera restina upp síðar, aðrir gera upp allt fyrir viðburðinn. Skilmálarnir fylgja tilboðinu sem þú samþykkir, svo þú sérð þá áður en þú skuldbindur þig.

Má ég koma með eigin veitingar?

Sumir salir leyfa það og aðrir ekki, og hjá þeim sem leyfa það getur fylgt gjald. Þetta er á meðal þess sem hver salur skráir á prófílinn sinn á ARVO, og þú getur síað eftir því.

Á ARVO

Sendu fyrirspurn á nokkra sali í einu.

Höfundur: Bergur Hjaltested, stofnandi ARVO

Fleiri greinar