Skráðu hver situr við hvaða borð og láttu gestina fletta sér upp sjálfa. Gesturinn skannar QR kóða, slær inn nafnið sitt og sér borðið sitt og hverja hann situr með. Inni í ARVO heitir þessi virkni Sæti og hún kostar ekkert.
Þú getur límt inn allan sætalistann í einu lagi. Ein lína á hvern gest: nafn, borð, og sæti ef þú vilt hafa það með. Hausalína er valfrjáls. Kommur inni í gildunum sjálfum eru ekki studdar. Ef þú ert að byrja upp á nýtt getur þú valið að skipta út öllu sem fyrir er.
Þú getur bætt við stökum gesti handvirkt með nafni, borðnúmeri og sæti, og breytt eða eytt línum eftir á. Listinn uppfærist jafnóðum og sýnir heildarfjöldann.
Gesturinn slær inn nafnið sitt og ARVO finnur það þótt stafsetningin sé ekki alveg nákvæm. Hann sér borðið sitt og getur smellt á það til að sjá alla sem sitja við sama borð, þar sem hans eigið nafn er merkt.
Sætaleitin er með einum rofa. Á meðan slökkt er sjá gestir einfaldlega að sætaleitin sé ekki virk.
Sæti í ARVO heldur utan um hver situr hvar. Þetta er listi yfir gesti og borð, ekki teikniborð þar sem þú stillir upp borðum í salnum.
Sætaleitin nýtist best þar sem setið er til borðs og gestirnir eru margir, eins og í brúðkaupum og stórafmælum. Þá sleppur þú við að prenta stórt sætakort og standa við innganginn og vísa til sætis.
Nei. Hún fylgir viðburðinum án endurgjalds.
Nei. Þeir skanna QR kóðann og fletta sér upp í vafranum.
ARVO finnur nafnið þótt stafsetningin sé ekki nákvæm.
Þú getur límt inn allt að 50.000 stafi í einu, sem dugar fyrir mjög stórar veislur.
Stofnaðu ókeypis reikning og settu inn sætaskipanina.