Þú hannar boðskortið í ARVO, sendir það í tölvupósti og sérð svörin tínast inn jafnóðum. Hver gestur fær sinn eigin hlekk, svarar þar hvort hann mætir, og þú sérð stöðuna á öllum listanum. Boðskortið kostar ekkert.
Leiðarvísirinn er í fimm skrefum. Í fyrsta skrefi setur þú heiti viðburðarins, texta, forsíðumynd og bakgrunnsmynd, velur eitt af sjö litatemum eða þinn eigin lit, og leitar að staðsetningunni. Þú getur læst boðskortinu með lykilorði og sett niðurtalningu á síðuna.
Spurningin um hvort gesturinn mætir er alltaf með og verður ekki tekin út. Til viðbótar getur þú kveikt á fullu nafni, netfangi, símanúmeri, mataróþoli og ofnæmi, hvort gesturinn drekkur áfengi, nafni maka og lagaósk. Þú getur líka bætt við þínum eigin spurningum í frjálsum texta.
Þú sendir boðskortið á gestina úr gestalistanum og hver sending fer í tölvupósti með persónulegum hlekk. Á listanum sérðu hversu margir hafa svarað já, nei, kannski eða ekki enn. Þú getur síað eftir stöðu, leitað að gesti, raðað gestum í hópa, merkt þá og flutt listann út í Excel.
ARVO krefst þess að þú hafir staðfest bæði netfangið þitt og símanúmerið áður en sending er leyfð. Það er til að verja gesti gegn ruslpósti. Sendingar takmarkast við 300 boðskort á hvern viðburð, 500 á dag og 50 á mínútu.
Í þriðja skrefi kveikir þú á því sem á við: QR aðgangsmiða fyrir gestina, gjafalista, og sjálfvirkri áminningu sem fer út viku fyrir viðburðinn.
Rafræna boðskortið kemur í stað prentaðra korta. Ef þig vantar prentun, hönnun eða merkingar á borðin finnur þú þá þjónustuaðila undir boðskort og prentun.
Já. Hönnun, sending, RSVP svörin og gestalistinn kosta ekkert.
Já. Gesturinn smellir á hlekkinn í póstinum og svarar þar. Hann þarf hvorki reikning né app.
Gestir geta afskráð sig sjálfir. ARVO hafnar frekari sendingum á það netfang eftir það.
Já. Þú sérð svar hvers gests fyrir sig og heildartölur fyrir já, nei, kannski og ósvarað.
Stofnaðu ókeypis reikning og sendu fyrsta boðskortið.