Friðrik Ómar & Jógvan - skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu

Friðrik Ómar & Jógvan

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Friðrik Ómar & Jógvan Hansen
Veislustjórn með húmor, músík og réttri tilfinningu fyrir salnum.

Friðrik Ómar og Jógvan Hansen eru einir vinsælustu veislustjórar landsins – og ástæðan er einföld: Þeir kunna að lesa salinn og halda utan um kvöldið frá upphafi til enda.

Þeir vinna náið með veitingaþjónustunni, halda utan um dagskrána og sjá til þess að kvöldið flæði – með léttleika, húmor og hæfilegum skammti af óvæntum uppákomum.

Báðir hafa áratuga reynslu af sviðinu og Friðrik hefur auk þess rekið viðburðafyrirtækið Rigg í nærri 20 ár. Þeir búa jafnframt yfir mikilli tæknikunnáttu og þekkja vel til hljóðs, ljósa og tæknilegrar framkvæmdar viðburða. Yfirsýnin er því mikil – bæði á því sem gerist á sviðinu og bak við tjöldin.

Þeir þekkja veisluna frá öllum hliðum og vita hvað þarf til að halda athygli gesta og skapa góða stemningu.

Engar tvær veislur eru eins – og eiga ekki að vera það.

Hvort sem um er að ræða árshátíð, brúðkaup, afmæli eða fyrirtækjaviðburð sníða Friðrik og Jógvan veislustjórnina að fólkinu, tilefninu og stemningunni hverju sinni.

Myndir

Hentar fyrir

brúðkaup, árshátíðir

Friðrik Ómar & Jógvan er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri skemmtikraftar á höfuðborgarsvæðinu