Birna er þaulreyndur uppistandari, veislustjóri og kynnir og tekur að sér skemmtanir af öllum stærðum. Birna Rún mætir á fyrirtækjaskemmtanir, veislur eða afmælispartý með kviss, í gegnum forritið Kahoot sem gerir allt að 500 manns kleift að taka þátt á sama tíma. Í boði eru ýmsar útgáfur.
Birna Rún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2016 og hefur síðan þá leikið á sviði, í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Síðustu ár hefur Birna leikið með spunahópnum Improv Ísland í Þjóðleikhúsinu. Á sviðinu hefur hún einnig leikstýrt sjálfstæðum sýningum og skólasýningum við frábærar móttökur. Birna er þjálfuð spuna- og grínleikkona með verðlaun á bakinu fyrir dramaleik.
brúðkaup, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, árshátíðir, einkasamkvæmi, afmæli, útskriftir, gæsa- og steggjapartý
Birna Rún er skemmtiþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.