Hæ, ég er Frikki.
og býð ykkur velkomin í Ítakt studios sem er staðsett á jarðhæð í Klettagörðunum Reykjavík.
Rýmið er hljóðeinangrað frá gólfi upp í loft og með allt til alls til að taka á móti hópum sem eru að fara steggja eða gæsa.
Ég hef verið í brúðkaups bransanum í þó nokkur ár og er enn í fullu fjöri að sinna stærsta degi brúðhjóna með því að bjóða upp á faglega þjónustu frá byrjun til enda.
Í yfir 20 ár hef ég verið starfandi tónlistarmaður og plötusnúður, spilað í yfir 200 brúðkaupum, komið fram víðsvegar um Evrópu. Mér finnst mjög gaman að remixa tónlist og meðal annars endaði ég í topp 10 sætunum í remix keppni hjá "Deadmau5" árið 2011. Við í tónlistar dúó-inu "KSF" unnum stóra remix keppni í Bandaríkjunum 2016 og okkur var flogið til Miami til að spila á Groove Cruise music festival.
Eftir að hafa séð yfir 200 steggja og gæsa myndbönd í gegnum árin hefur mér langað að bjóða upp á þjónustu sem ég þekki einstaklega vel. Í studio-inu er ég að prenta á boli, peysur og derhúfur — tilvalið fyrir þau sem vilja byrja daginn í studio, fá sérmerktar flíkur tilbúnar þegar þið mætið. Rýmið rúmar 8–12 manns og ef hópurinn er stærri þá er aðstaða frammi til að hlusta á tónlist eða spjalla.
Þetta gerist varla flottara.
Þú velur pakka, ég sé um restina.
Friðrik Th. Gíslason
gæsa- og steggjapartý
Ítakt er skreytingaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.