Ef góð veisla á að heppnast – þá sjáum við um veitingarnar.
Við bjóðum upp á þrjár veislutillögur fyrir fermingar, giftingar og smáréttaveislur – en auðvitað er hægt að sérsníða allt eftir ykkar þörfum.Við sjáum um matinn og tryggjum að gestirnir fari saddir og sáttir.
Eigendur Bragðlauga eru Hinrik Örn Lárusson, Viktor Örn Andrésson og Sigurður Helgasson. Þeir búa yfir áratuga reynslu úr veitingageiranum og eru jafnframt eigendur Lux Veitinga, Sælkerabúðarinnar, Sælkeramats og Brasa á Smáratorgi. Sameiginleg sýn þeirra byggir á fagmennsku, gæðum, nýsköpun og framúrskarandi þjónustu.
Hjá Bragðlaukum starfar öflugur hópur reynslumikils starfsfólks sem hefur ástríðu fyrir góðum mat og framúrskarandi þjónustu. Við leggjum metnað í að bjóða ferskar, bragðgóðar og fjölbreyttar máltíðir á hverjum degi og tryggja að viðskiptavinir njóti ávallt gæða og persónulegrar þjónustu.
barnaafmæli, afmæli, brúðkaup, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir
Bragðlaukar Veisluþjónusta á höfuðborgarsvæðinu: hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.