Ég heiti Eiríkur Ingi og er þriggja barna faðir.
Eins og sennilega allir í mínu fagi þá hef ég alltaf haft mikinn áhuga á ljósmyndun frá því ég man eftir mér. Ég byrjaði þó ekki að mynda af neinni alvöru fyrr en ég eignaðist son minn. Þá sá ég að þetta var eitthvað sem ég myndi vilja gera miklu meira af.
Eftir 13 ár í þessu starfi tel ég mig vera kominn með góða reynslu og þekkingu af flestu sem við kemur ljósmyndun.
Fjöldi ánægðra viðskiptavina tala sínu máli.
brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, hátíðir, skírnir og fermingar, árshátíðir
Eirikur Ingi Photography er ljósmyndaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.