Slideshow.is

Ljósmyndun og myndbandsgerð · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Slideshow.is er einföld og skemmtileg lausn fyrir viðburði þar sem gestir geta sent inn myndir og myndbönd með QR-kóða og séð efnið birtast á skjá í rauntíma. Eftir viðburðinn er hægt að hlaða niður allri myndasýningunni og myndefninu og búa til plakat úr myndunum.

Slideshow.is er gagnvirk myndasýning fyrir brúðkaup, árshátíðir, afmæli og aðra viðburði. Gestir skanna einfaldlega QR-kóða með símanum sínum og geta sent inn myndir og myndbönd án þess að þurfa að sækja app eða stofna aðgang. Efnið birtist svo beint á skjá eða skjávarpa á meðan viðburðurinn stendur yfir og verður hluti af stemningunni í salnum.
Einnig er innbyggður photobooth sem hægt er að nota bæði úr síma og á iPad.

Eftir viðburðinn er hægt að hlaða niður allri myndasýningunni og öllu myndefninu, auk þess að búa til plakat úr myndunum sem safnast saman. Slideshow.is hentar því bæði sem skemmtileg upplifun á meðan viðburðurinn stendur yfir og sem einföld leið til að safna saman minningunum eftir á.

Þjónustupakkar

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, árshátíðir, skírnir og fermingar, gæsa- og steggjapartý, hátíðir

Slideshow.is er ljósmyndaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri ljósmyndarar á höfuðborgarsvæðinu