Nordic Guard Security

Starfsfólk á viðburð · Austurland

Um þjónustuna

Nordic Guard býður faglega og trausta öryggisgæslu fyrir viðburði af öllum stærðum.

Nordic Guard býður faglega öryggisgæslu fyrir árshátíðir, tónleika, skemmtanir, ráðstefnur, fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi og aðrar samkomur.

Við getum séð um dyragæslu, aðgangsstýringu, almenna öryggisgæslu, eftirlit með svæðum, gestaflæði og viðbragð eftir þörfum.

Hjá Nordic Guard starfar öflugt starfsfólk með víðtæka reynslu af öryggisgæslu og fjölbreyttum verkefnum. Stjórnendur félagsins búa jafnframt yfir margra ára reynslu af stjórnun, skipulagningu og framkvæmd öryggisgæslu, þar á meðal við krefjandi aðstæður og stærri verkefni.

Umfang gæslunnar er metið út frá stærð, staðsetningu og eðli viðburðarins og þjónustan löguð að þörfum hvers verkefnis.

Markmiðið er ávallt að gæslan sé vel skipulögð, fagleg og í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, áreiðanleika, góða framkomu og öruggt umhverfi fyrir gesti og starfsfólk.

Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þínum viðburði.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, útskriftir, hátíðir, árshátíðir

Nordic Guard Security er starfsmannaþjónusta á Austurlandi og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleira starfsfólk á Austurlandi