Dísella - tónlistarþjónusta í Reykjavík

Dísella

Tónlist · Reykjavík

Um þjónustuna

Grammy-verðlaunahafinn Dísella Lárusdóttir hefur unnið hvern listrænan sigurinn á fætur öðrum sem söngkona og hefur unnið að mestu við Metrópólitan-óperuna í New York á sínum starfsferli. Söngur hennar hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda, til að mynda í stórblaðinu New York times sem hrósaði henni fyrir fádæma nákvæmni í bland við magnaða túlkun.

Dísella þreytti frumraun sína hjá Metropolitan Óperunni í mars 2013 en síðan þá hefur hún sungið í hinum ýmsu uppsetningum og hafa fjórar þeirra, Francesca da Rimini eftir Riccardo Zandonai, Rusalka eftir Antonin Dvorák, Marnie eftir Nico Muhly og Akhnaten e. Philip Glass ratað í beina útsendingu í kvikmyndahús um allan heim.

Dísella hefur einnig látið til sín taka á óperusviðinu í Evrópu á síðustu árum en frumraun hennar á meginlandinu var í óperu Albans Berg, Lulu, í Róm 2017. Dísella hefur víða komið fram sem einsöngvari á tónleikasviði, meðal annars í Carnegie Hall í New York, Disney Hall í Los Angeles ásamt fjölda annarra tónlistarhátíða í Bandaríkjunum.

Dísella útskrifaðist með Mastersgráðu í söng og söngkennslufræðum frá Westminster Choir College of Rider University árið 2005. Hún kenndi í nokkur ár í Bandaríkjunum þar til söngurinn tók alfarið við um stund. Hún hefur nú starfað sem kennari hjá Listaháskóla Íslands síðan árið 2020 en einnig starfar hún hjá Söngskólanum í Reykjavík.

Myndir

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, hátíðir, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir

Dísella er tónlistarþjónusta í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri tónlistaratriði á höfuðborgarsvæðinu