Elísabet Ormslev - tónlistarþjónusta í Reykjavík

Elísabet Ormslev

Tónlist · Reykjavík

Um þjónustuna

Elísabet er söngkona og lagahöfundur sem þekkt er fyrir kraftmikla rödd sína og sterka sviðsframkomu. Fædd og uppalin í Reykjavík hefur hún mótað listræna sjálfsmynd sína og byggt upp dyggan aðdáendahóp með því að koma fram á stærstu tónlistarviðburðum landsins, auk þess að semja og flytja tónlist með fjölda landsþekktra tónlistarmanna, lagahöfunda og pródúsenta á alþjóðavettvangi.

Í júní 2019 sendi hún frá sér frumraun sína, smáskífuna HEART BEATS, sem náði inn á topp 10 hjá stærstu útvarpssamsteypu Íslands og hlaut áberandi sess á vinsælum Spotify-lagalistum á borð við New Music Friday Iceland/Sweden/Denmark og GRL PWR. Þar á eftir gaf hún út smáskífuna SUGAR sem sat á toppi vinsældarlista fjölda útvarpsstöðva og heyrðist síðar í vinsælu raunveruleikaþáttunum Love is Blind á Netflix.

Myndir

Hentar fyrir

afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, hátíðir, skírnir og fermingar, árshátíðir, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, útskriftir, brúðkaup

Elísabet Ormslev er tónlistarþjónusta í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Heimasíða þjónustuaðilans

Fleiri tónlistaratriði á höfuðborgarsvæðinu