Emil Lorange - tónlistarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu

Emil Lorange

Tónlist · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Emil Lorange er einn af eftirsóttustu plötusnúðum landsins og hefur á síðustu fimm árum skipað sér sess meðal fremstu plötusnúða í íslensku skemmtanalífi.

Emil hefur spilað á flestum helstu skemmtistöðum og hátíðum landsins, þar á meðal Auto, HAX, Nínu, Edition, Þjóðhátíð, Kótilettunni, Írskum dögum og Oktoberfest, auk þess að hafa komið fram erlendis.

Reynslan nær þó langt út fyrir skemmtistaðina. Emil hefur séð um tónlistina í fjölda brúðkaupa, afmæla, árshátíða, fyrirtækjaviðburða og einkasamkvæma af öllum stærðum og gerðum. Hvort sem um er að ræða 15 ára afmæli, fimmtugsafmæli eða stóra árshátíð er markmiðið alltaf það sama: að skapa réttu stemninguna og gera viðburðinn eftirminnilegan.

Það sem einkennir Emil er hæfileikinn til að lesa salinn, aðlaga tónlistarvalið að hverjum viðburði og setja sinn eigin svip á upplifunina. Með fjölbreyttan tónlistarsmekk, mikla reynslu og sterka tilfinningu fyrir stemningu er hver viðburður sniðinn að gestunum.

Umfram allt leggur Emil áherslu á fagmennsku, traust og framúrskarandi þjónustu, allt frá fyrstu samskiptum til síðasta lags.

Myndir

Aðstaða og þjónusta

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir

Emil Lorange er tónlistarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri tónlistaratriði á höfuðborgarsvæðinu