Hljómsveitin Loftskeytamenn spilar tónlist með íslenskum textum frá fjórða, fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Hljómsveitin heldur uppi góðu dansstuði og sendir fólk í kokkinn, skottís og limbó og vill helst að dömur dansi við herra og öfugt og þá helst með haldi. Svona gigg er fullkomið sem ca klukkutíma skemmtun, sem hluti af stærri dagskrá (dj á eftir, sem hluti af stærri árshátíðum etc) En það sem við höfum gert og getum gert er að taka klukkutíma af sixties tónlist, taka síðan pásu og mæta aftur í nýjum göllum og taka annan klukkutíma af hefðbundnu balli með nýrri tónlist. Ef vill getum við líka mætt með minni útgáfu af bandinu og leikið hæglátt undir t.a.m fordrykk.





brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, árshátíðir, útskriftir, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði
Loftskeytamenn er tónlistarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.