Silja Rós - tónlistarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu

Silja Rós

Tónlist · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Söngkonan, lagahöfundurinn og leikkonan Silja Rós heillar endurtekið hlustendur sína með sinni einstöku rödd og einlægri nærveru. Silja Rós er útskrifuð jazz söngkona frá Tónlistarskóla FÍH og hefur starfað sem lagahöfundur og söngkona í yfir áratug. Hún er einnig menntuð leikkona og er þekktust fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum SKVÍZ.

Silja Rós hefur skapað sér sterka sérstöðu í íslensku tónlistarlífi með grípandi lagasmíðum sem sameinar neo-soul hljóðheim með popp lagasmíðum. Textarnir eru einlægir með persónulega nálgun. Silja Rós tók einnig þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2023 með frumsömdu lagi.

Tónlist Silju Rósar hentar vel fyrir tónlistarhátíðir, fyrirtækjaviðburði, bæjarhátíðir og aðra viðburði.

Silja Rós starfar líka sem jazz söngkona og skipar dúet ásamt jazz gítarleikaranum Magnúsi Dagssyni. Þau bjóða upp á allt að tveggja klukkustunda huggulega tónleika sem henta vel fyrir fordrykki á árshátíðum, brúðkaupum og öðrum veislum. Einnig taka þau að sér jóla jazz í Nóvember og Desember sem hentar einstaklega vel á jólahlaðborð og aðrar fyrirtækjaskemmtanir í kringum hátíðina. Silja Rós og Magnús skapa hlýja huggulega kvöldstund sem kemur öllum í hátíðarskap fyrir jólin sem einlægum flutningi og fallegum útsetningum.

Silja Rós tekur einnig að sér söng í brúðkaupum bæði athöfninni og veislunni.

Myndir

Aðstaða og þjónusta

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir, einkasamkvæmi, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, hátíðir

Silja Rós er tónlistarþjónusta á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri tónlistaratriði á höfuðborgarsvæðinu