Færanlegur minigolf veislugarður, 3, 6 eða 9 holur. Stærri garðarnir eru frábærir fyrir hópefli eða veislur á meðan 3 holu er góður yfir fordrykknum. Þú þarft bara að panta við sjáum um að allt sé klárt til að hefja leik. Pökkum fylgir uppsetning, heimsending og niðurtekt. Golfkylfur, kúlur, skorkort, leikreglur fylgja uppsett á felliborði. Hægt að spila sem einstaklingskeppni eða liðakeppni eða hafa frjálst. Fyrir 9 holur er hægt að hafa starfsmann með sem útskýrir og aðstoðar.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, árshátíðir, skírnir og fermingar, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, útskriftir
Grænka Minigolf pop up er afþreyingarþjónusta í Mosfellsbæ og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.