Í hjarta borgarinnar
Salurinn á Plaza er staðsettur í hjarta borgarinnar, beint fyrir framan Ingólfstorg. Salurinn er rúmgóður, bjartur með stórum gluggum og aðgengi út í lokað port þar sem fyrir eru borð og stólar. Aðgengið að salnum er mjög gott þar sem hann er staðsettur á jarðhæð. Í boði er gott úrval af veitingum fyrir veisluna - allt eftir því hvað þú óskar eftir.
brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, erfidrykkjur, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, skírnir og fermingar, árshátíðir
Centerhotels Plaza er veislusalur á höfuðborgarsvæðinu og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.