Hannesarholt ses

Veislusalur · Reykjavík

Um þjónustuna

Hannesarholt er áhugaverður valkostur fyrir fundi, námskeið, málþing, minni ráðstefnur og aðrar uppbyggjandi samkomur.

Á fjórum hæðum hússins eru ýmsar vistarverur sem henta ólíkum aðstæðum: baðstofuloft á 3. hæð, tvö fundarherbergi auk arinstofu á 2. hæð, veitingastofur á 1. hæð og 100 fermetra salur í viðbyggingu.

Í viðbyggingu (gengið inn frá Skálholtsstíg) er nýr og vandaður fjölnota salur, sérstaklega hannaður til tónlistarflutnings. Hljóðberg hentar einnig vel til fyrirlestrahalds, sýninga og annarra minni viðburða. Engin starfsemi er leyfð í salnum eftir kl.23:00.

Leigukostir

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir og fermingar, árshátíðir, hátíðir, útskriftir

Hannesarholt ses er veislusalur í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri veislusalir á höfuðborgarsvæðinu