Hótel Örk - Aðalgerði

Veislusalur · Hveragerði

Um þjónustuna

Við sinnum hverskyns veisluþjónustu hvort sem það er árshátíð, ferming, erfidrykkja, afmæli, útskrift, kaffihlaðborð eða aðrar óskir.

Aðalgerði er stærsti salur hótelsins og hentar hann vel til árshátíða, annarra veisla eða stærri funda. Salurinn er afar bjartur og fallegur og hentar sérstaklega vel fyrir fundi af ýmsum stærðum. Salurinn er á sömu hæð og HVER Restaurant. Mögulegt er að skipta fundum upp í smærri vinnuhópa og nýta þannig aðstöðuna fyrir mismunandi stóra hópa. Í salnum er gott svið fyrir ræðuhöld, leiksýningar, hljóðfæraleik og hljómsveitir. Full þjónusta er í boði.

Aðstaða í sal:
Þráðlaust net & Myndvarpi – Skjávarpi & Sýningartjald – Hljóðkerfi & Hljóðnemi – Ræðupúlt

Fjöldi gesta: 100 – 300
Fermetrar: 315

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir, barnaafmæli, hátíðir

Hótel Örk - Aðalgerði er veislusalur í Hveragerði og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri veislusalir á höfuðborgarsvæðinu