Hvammur er skemmtilegur salur í millistærð á 1. hæð hótelsins. Hvammur rúmar allt að 200 gesti í standandi móttöku eða 96–120 gesti í annars konar uppstillingu.
Salurinn hentar vel fyrir fundi, móttökur, einkasamkvæmi og minni sýningar. Þar er nútímalegur tæknibúnaður og rúmgott samkomusvæði sem auðveldar skipulag og flæði viðburða.
Hvammur er leigður út með hringborðum, en hægt er að breyta uppstillingu eftir þörfum gegn breytingagjaldi.
Í næsta nágrenni eru Grand Brasserie og Torfastofa, þar sem gestir geta hist yfir kaffihléi, móttöku eða notið óformlegra samverustunda á milli dagskrárliða.
brúðkaup, afmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, einkasamkvæmi, hátíðir, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir, erfidrykkjur
Hótel Grand Hvammur er veislusalur í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.