Veislusalur í Hraunbyrgi

Veislusalur · Hafnarfjörður

Um þjónustuna

Veislusalur Hraunbúa býður upp á spennandi möguleika fyrir minni sem stærri hópa. Fallegt og rólegt umhverfi býður upp á góð tækifæri.

Veislur
Hægt er að bóka salinn fyrir veislur á föstudögum-sunnudaga og á rauðum dögum.

Salurinn er leigður út með starfsmanni allan tímann. Starfsmaðurinn er á staðnum til að aðstoða, m.a. við uppröðun, sinnir eldhúsi, hellir uppá kaffi og sér m.a. um öll þrif og uppvask, en þjónar ekki til borðs.
Gert er ráð fyrir tveim starfsmönnum ef gestafjöldi fer yfir 60 manns. Hraunbúar geta bent á annan starfsmann en leigutaki má einnig útvega aukastarfsmanninn sjálfur.
Salurinn leigist út án veitinga og er aldrei leigður út lengur en til 01:00.

Búnaður:
Í salnum er borðbúnaður fyrir 100 manns, hljóðkerfi og þráðlausum hlóðnema og skjávarpi.

Dúkar fylgja ekki og þarf að panta þá sérstaklega (sjá verðskrá).

Salurinn er jafnan afhentur samdægurs.

Fundir og ráðstefnur
Hægt er að bóka salinn fyrir fundi og ráðstefnur á mánudögum til fimmtudaga.

Salurinn tekur um 110 manns í sæti og er tilvalinn fyrir ýmis tilefni s.s. ráðstefnur, fundi o.fl.
Salurinn er fallegur, með rúmgóðu anddyri og flottri eldhúsaðstöðu. Aðgengi er gott.
Salurinn leigist út án veitinga og er aldrei leigður út lengur en til 01:00.

Salurinn er vel tækjum búinn fyrir hvaða fund eða ráðstefnu sem er.
Gott hljóðkerfi
Skjávarpi á stórt tjald
Þráðlausir hljóðnemar
Opið wifi

Salurinn er jafnan afhentur samdægurs.

Aðstaða og þjónusta

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, skírnir og fermingar, árshátíðir, útskriftir

Veislusalur í Hraunbyrgi í Hafnarfirði: hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri veislusalir á höfuðborgarsvæðinu

Fleiri salir til leigu