White Lotus

Veislusalur · Reykjavík

Um þjónustuna

Glæsilegt rými fyrir viðburði í miðbæ Reykjavíkur

White Lotus er við hlið Mama Reykjavík — sama hjarta, annað rými. Hlýlegt og persónulegt, en samt nógu stórt fyrir 150 manns á dansgólfi. Hljómburðurinn er djúpur, lýsingin lifandi og rýmið aðlagast hverjum viðburði. Kakóathöfn á daginn, tónleikar um kvöldið, jóga morguninn eftir.

Rými fyrir alls konar samkomur.
Tónleikar, kakóathafnir, jóga, danskvöld, sýningar, fyrirtækjaviðburðir — White Lotus er ekki bundið við eitt form.

Hlýlegt, fallegt og auðvelt að halda viðburð.

White Lotus býður upp á einkakokk. Segðu okkur frá hugmyndinni — við búum til matseðil sem passar.

Aðstaða og þjónusta

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, erfidrykkjur, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburði, árshátíðir, skírnir og fermingar, hátíðir

White Lotus er veislusalur í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Heimasíða þjónustuaðilans

Fleiri veislusalir á höfuðborgarsvæðinu