Arctic Pies

Veisluþjónusta · Reykjavík

Um þjónustuna

Arctic Pies færir ástralska bökuhefðina til Íslands með ekta áströlskum sælkerabökum sem eru handgerðar hér á landi úr völdu hráefni. Bökur eru kannski ekki það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar kemur að veisluveitingum – og einmitt þess vegna eru Arctic Pies skemmtileg og öðruvísi viðbót við viðburðinn.

Hvort sem um er að ræða brúðkaup, fyrirtækjaviðburð, afmæli, partý eða hátíð er Arctic Pies góður kostur fyrir þá sem vilja bjóða gestum upp á eitthvað öðruvísi en hefðbundnar veitingar. Bökunum fylgir ákveðinn „comfort food“-blær sem hentar sérstaklega vel þegar markmiðið er að gestir geti fengið sér eitthvað gott, einfalt og saðsamt.

Arctic Pies hefur einnig tekið þátt í ýmsum pop-up viðburðum og matarhátíðum, meðal annars sem hluti af The Food Village þar sem boðið var upp á ástralskar bökur.

Ef þið viljið bæta smá áströlskum karakter og skemmtilegri nýjung við veitingarnar er Arctic Pies frábær kostur fyrir viðburðinn.

Arctic Pies er veisluþjónusta í Reykjavík og hægt er að senda fyrirspurn og fá tilboð í gegnum ARVO.

Senda fyrirspurn

Fleiri veisluþjónustur á höfuðborgarsvæðinu