Hóll er einstakt samkomuhús fyrir hópa sem vilja meira en bara gistingu
Hóll á Siglufirði stendur eitt og sér á einstökum stað með stórbrotið útsýni yfir fjöll og fjörð. Hér mætast náttúra, saga og rými fyrir hópa sem vilja njóta samveru, kyrrðar og ævintýra á norðurhjara Íslands.
Húsið hefur verið tekið í gegn og endurnýjað með þarfir hópa í huga og er í dag fullbúið til að taka á móti gestum sem vilja skapa minningar og upplifa eitthvað meira en hefðbundna gistingu.
Allt sem þú þarft fyrir ógleymanlega dvöl
Hóll er fullkominn staður fyrir brúðkaup, ættarmót, afmæli, vinahópa, fyrirtækjahópa, náttúrudvalir og aðra hópa í leit að ævintýrum.
brúðkaup, afmæli, skírnir, brúðkaupsafmæli, útskriftir, einkasamkvæmi, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, gæsa- og steggjapartý, erfidrykkjur