Ási Guðna

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Ási Guðni er uppistandari og veislustjóri sem er þekktur fyrir beittan húmor, svartan húmor og létta nálgun sem fær fólk til að hlæja og taka þátt. Hann hefur gott lag á að lesa í salinn og skapa afslappaða stemningu þar sem húmorinn fær að njóta sín og gestir verða hluti af upplifuninni.

Hvort sem um er að ræða árshátíð, fyrirtækjaviðburð, afmæli, brúðkaup, teiti eða aðra uppákomu kemur Ási Guðni með húmorinn, orkuna og reynsluna sem þarf til að lyfta stemningunni. Sem veislustjóri heldur hann utan um dagskrána og tryggir gott flæði í gegnum kvöldið, á meðan uppistandið gefur honum tækifæri til að setja sinn persónulega svip á viðburðinn.

Ási býður einnig upp á pubquiz þar sem fróðleikur, keppnisskap og húmor fara saman. Hann aðlagar dagskrána að tilefninu og gestahópnum og er óhræddur við að grípa augnablikið þegar tækifæri gefst til að skapa smá óvæntan húmor.

Ef þú ert að leita að skemmtikrafti sem þorir að vera beinskeyttur, kann að nýta svartan húmor og leggur áherslu á að gestir skemmti sér er Ási Guðni frábær kostur. Því það er miklu skemmtilegra að hafa gaman en að hafa ekki gaman.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, brúðkaupsafmæli, útskriftir, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir

Senda fyrirspurn