Aðkoma er góð með næg bílastæði. Salurinn er bjartur og sveigjanlegur. Eldhúsi. Sjónvarpsskjár. Hentar veislum og námskeiðum; áfengi ekki leyft.
Aðkoman er þægileg og auðvelt að finna salinn, auk þess sem næg bílastæði eru fyrir framan húsið. Anddyrið er rúmgott.
Salurinn sjálfur er bjartur og fallegur, með þægilegum stólum og borðum sem hægt er að raða á fjölbreyttan hátt eftir tilefni og þörfum.
Við salinn er rúmgott eldhús sem hentar vel til undirbúnings og framreiðslu veitinga. Í salnum er einnig sjónvarpskjár.
Salurinn hentar sérstaklega vel fyrir fermingar-, skírnar- og afmælisveislur, sem og erfidrykkjur, og almennt fyrir viðburði þar sem áfengi er ekki haft um hönd, þar sem notkun þess er ekki leyfileg í salnum.
Auk þess hentar salurinn mjög vel fyrir námskeið, fyrirlestra og kennslu.
brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir