Hlaðan Brú Hótel countryside

Tónlist og hljóð · Selfoss

Um þjónustuna

Hótel Brú býður upp á einstaka staðsetningu fyrir viðburði umkringda íslenskri náttúru, nálægt fossum, eldfjallasvæðum og útsýnisleiðum.

Rómantísk sveitasæla í aðeins klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, í hjarta Grímsnessins og í næsta nágrenni við helstu perlur Gullna hringsins. Einstakt umhverfi sem býður upp á náttúrufegurð og sérstöðu sem gerir viðburðinn eftirminnilegan.

Hlaðan er tilvalinn vettvangur fyrir fjölbreytta viðburði, brúðkaup, árshátíðir, ráðstefnur, fundi og ættarmót. Tvö rúmgóð rými má nýta hvort í sínu lagi eða saman fyrir allt að 255 gesti. Í aðalsal Hlöðunnar er svið, hljóðkerfi, skjár og öll helsta tækniaðstaða til skemmtana og kynninga.

Utandyra er stór pallur sem hentar vel fyrir grillveislu, dans og samveru þegar veður leyfir. Grasfletir og tún í kring skapa svigrúm fyrir hópefli, leiki og útivist. Umhverfið er einstakt, með fallegu útsýni yfir fjöll, vötn og sveitasamfélagið allt í kring.

Á sama stað er Sveitahótelið Brú með 31 herbergi af mismunandi stærðum, öll með sérbaðherbergi. Hótelið býður einnig upp á matsal fyrir allt að 70 gesti sem nýtist vel fyrir morgunverð, hópmáltíðir eða minni samkomur.

Á Brú færðu allt sem þarf fyrir heildræna upplifun – viðburðarrými, gistingu, veitingar og náttúrulegt umhverfi sem setur einstakan svip á hvaða tilefni sem er.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, brúðkaupsafmæli, skírnir, hátíðir

Senda fyrirspurn