Búbblur

Veisluþjónusta · Reykjavík

Um þjónustuna

Búbblubíllinn er einstök akandi þjónusta sem býður ískalt freyðivín og bjór beint úr dælukerfi. Elegant lausn fyrir viðburði – engir klakar, ekkert vesen, bara góð stemning!

Búbblubíllinn er nýr og heillandi sjarmör á götum Reykjavíkurborgar – Hann var upprunalega venjulegur ítalskur vespubíll af klassísku tegundinni Piaggio Ape en er nú kominn með fullkomið dælukerfi, svo hægt er að bjóða upp á ííískalt og ljúffengt freyðivín og bjór úr kútum.
Búbblubíllinn er elegant og skemmtileg lausn fyrir viðburði. Engir klakar, engar flöskur eða dósir, ekkert vesen. Bara svalandi bjór ... já og auðvitað fallegar búbblur í háum kampavínsglösum!
Búbblubíllinn er eina akandi búbbluþjónusta landsins en samskonar þjónusta hefur slegið í gegn víða um heim. Þjónustan hentar fyrir allt frá 20 manna vinaboði upp í stóra viðburði með fleiri hundruð manns og ekki er verra að hún býðst allan ársins hring.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, brúðkaupsafmæli

Senda fyrirspurn