By Hera Hlín

Hár og förðun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Förðun fyrir öll helstu tilefni - Afmæli, brúðkaup, árshátíð, auglýsingar og fleira

Ég heiti Hera Hlín og er sjálfstætt starfandi förðunarfræðingur með ástríðu fyrir því að skapa faglegt útlit sem undirstrikar persónuleika og þarfir hvers verkefnis.

Ég útskrifaðist sem löggiltur förðunarfræðingur frá Makeup Studio Hörpu Kára árið 2022 og hef síðan þá unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir sjónvarp, auglýsingar, myndatökur og viðburði.

Samhliða sjálfstæðum verkefnum starfa ég í hlutastarfi hjá Borgarleikhúsinu, þar sem ég hef komið að förðun fyrir nokkrar af stærstu leiksýningum landsins. Sú reynsla hefur veitt mér dýrmæta þekkingu á fjölbreyttum aðferðum og vinnu í krefjandi og skapandi umhverfi.

Ég legg metnað minn í fagmennsku, nákvæm vinnubrögð og gott samstarf við viðskiptavini og samstarfsfólk. Hvort sem um er að ræða ljósmyndun, kvikmyndun, leikhús eða sérstakt tilefni er markmið mitt ávallt að skapa útlit sem styður við heildarsýn verkefnisins og lætur viðskiptavinum líða vel.

Ég er ávallt opin fyrir nýjum verkefnum og spennandi tækifærum. Þér er velkomið að hafa samband við mig hér á Arvo.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, brúðkaupsafmæli, útskriftir, hátíðir, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, skírnir

Senda fyrirspurn