Glæsilegur veislusalur í Grósku sem hentar fyrir bæði einkaviðburði og stærri samkomur.
Ekki er möguleiki að leigja salinn án veitinga.
EIRIKSDOTTIR er glæsilegur veislusalur fyrir allt að 200 gesti í sæti og mun fleiri í standandi veislum.
EIRIKSSON Brasserie við Laugaveg 77 sér um allar veitingar í húsinu.
Gott aðgengi er að húsinu og næg bílastæði í boði.
Í Grósku er einnig glæsilegur ráðstefnusalur sem hentar vel fyrir ráðstefnur, fyrirlestra og fjölbreytta viðburði.
Fyrir utan salinn er opið rými sem hentar einstaklega vel fyrir móttökur og veitingar við fallegan gróðurvegg hússins.
Helstu kostir
• Hentar fyrir brúðkaup, árshátíðir og einkaviðburði
• Glæsilegur salur sem rúmar allt að 200 gesti í sæti og fleiri í standandi viðburðum
• Svið, hljóðkerfi og lýsing til staðar
• Bar og móttökusvæði
• Góð staðsetning og aðgengi
brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir, brúðkaupsafmæli