Eva Ruza

Skemmtun · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Eva Ruza er einn reynslumesti og eftirsóttasti veislustjóri landsins. Með húmor, mikla orku og sér til þess að stemningin sé rétt frá upphafi til enda.

Eva Ruza hefur áralanga reynslu af því að stýra fjölbreyttum viðburðum og er þekkt fyrir líflega sviðsframkomu, beittan húmor og einstaklega góða nærveru. Hún á auðvelt með að ná til ólíkra hópa og skapa afslappaða og skemmtilega stemningu þar sem gestir verða hluti af gleðinni.

Hvort sem um er að ræða árshátíð, fyrirtækjaviðburð, brúðkaup eða stærri skemmtun tekur Eva utan um dagskrána, tengir atriðin saman og passar að kvöldið haldi góðu flæði.

Eva hentar sérstaklega vel þegar þú vilt veislustjóra sem gerir meira en að kynna næsta atriði – hún setur sinn svip á kvöldið og hjálpar til við að gera viðburðinn eftirminnilegan.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, brúðkaupsafmæli, hátíðir

Senda fyrirspurn