Afar fallegur veislusalur sem tekur 180 manns til sætis og 250 manns í standandi veislur og viðburði. Yfir þessu svæði sveimar sveita sjarminn í höfuðborginni.
Glæsilegur veislusalur í Víðidal - Leigist með eða án veitinga.
Félagsheimili Fáks er fjölhæft húsnæði sem hentar vel til einkalegra og faglegra viðburða – hvort sem um er að ræða afmæli, brúðkaup, fermingar, starfsmannaveislur eða önnur mannamót. Salurinn er sveigjanlegur og hægt er að skipta honum í tvo hluta eftir þörfum. Með salnum fylgir borð og stólar fyrir allt að 180 manns, glös, diskar og almennur borðbúnaður, hljóðkerfi, ræðupúlt og 2 skjávarpar.
• Hentar fyrir fjölbreytta viðburði
• Rúmar allt að 180 gesti
• Hægt að skipta salnum í tvo hluta
• Fullbúinn með búnað – engin þörf á að leigja annað
Félagsheimili Fáks er ríkulega búinn, afar bjartur, fallegur og rúmgóður salur á jarðhæð sem býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir góða veislu. Gott aðgengi beint inn af gangstétt
Salurinn hentar vel til margskonar fagnaða s.s. fyrir afmæli, brúðkaup, fermingar, árshátíðir, ættarmót, starfsmannaveislur, jólahlaðborð, hópefli, fundi / kynningar, fyrirtækja skemmtanir, danshópa, þorrablót, erfidrykkju og hverskyns mannamót.
Mögulegt er að skipta salnum upp í tvo hluta.
Anddyrið er mjög rúmgott og mögulegt að vera með borð t.d fyrir miðasölu og vaktað fatahengi.
Í salnum er lítill bar fyrir afgreiðslu á drykkjarföngum.
Guðmundastofa er lítill huggulegur salur sambyggður við Félagsheimilið sem býður upp á enn fleiri möguleika sé hann leigður með.
Í salnum er hljóðkerfi fyrir tal og tónlist, barborð og framleiðslueldhús.
Í salnum er fullbúið eldhús með góðum ofni, eldavél og uppþvottavél og kæli. Eldhúsið hentar því bæði sem móttökueldhús sem og að full elda mat fyrir veislur. Allur helsti borðbúnaður fylgir með.
Salurinn er leigður út með eða án veitinga en fyrir þá sem þess óska erum við í samstarfi við veisluþjónustur sem getur töfrað fram það sem hugurinn girnist.
Hægt er að ganga út á rúmgóða verönd og njóta útsýnisins um dalinn. Kjörinn fyrir útibrúðkaup eða góða grillveislu á fallegum degi.
Aðgengið er mjög gott, húsið á einni hæð með stóru bílastæði og góðu hjólastólaaðgengi.
Innifalið í leigu borðbúnaður og afnot af framreiðslueldhúsi.
Athugið að dúkar fylgja ekki en hægt er að leigja þá hjá okkur.
brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, hátíðir, skírnir, brúðkaupsafmæli