Flying Elbows

Tónlist og hljóð · Hafnarfjörður

Um þjónustuna

Flying Elbows er traust og reynslumikil hljómsveit sem tryggir þér faglegan viðburð frá fyrstu samskiptum til síðasta tóns. Við spilum vinsæl og aðgengileg lög sem höfða til breiðs hóps og styðja við markmið viðburðarins, hvort sem það er að byggja stemningu, hvetja til samskipta eða skapa eftirminnilega kvöldstund.

Flying Elbows er reynslumikil hljómsveit sem sérhæfir sig í tónlist fyrir fyrirtækjaviðburði, árshátíðir, ráðstefnur og veislur þar sem áreiðanleiki og gæði skipta máli. Við höfum spilað á fjölmörgum viðburðum á bæði lítlum og stórum stöðum og vitum hversu mikilvægt er að tónlistin styðji við heildarupplifunina, stemninguna og markmið kvöldsins.

Við leggjum mikla áherslu á undirbúning og skýra samskiptalínu við viðburðastjóra. Við mætum tímanlega, stillum upp hratt og faglega og tryggjum að allt hljóði og flæði sé í toppstandi áður en gestir mæta. Hljómsveitin er skipuð reyndum tónlistarmönnum sem kunna að lesa salinn og byggja upp stemningu.

Við spilum fjölbreytt og aðgengilegt efni sem hentar breiðum aldurshópum og formlegum viðburðum. Dæmi um lög sem við tökum reglulega:

The Best – Tina Turner

Locked out of Heaven – Bruno Mars

Don’t Stop Believin’ – Journey

Living on a prayer – Bon Jovi

Teenage Dirtbag – Wheatus

Beautiful Things – Benson Boone

Við veljum lög sem allir þekkja, skapa jákvæða orku og henta vel fyrir dansgólf, stemningu eða hátíðlegar stundir.

Við nálgumst hvern viðburð eins og sérverkefni:

Við aðlögum lagavalið að markmiðum kvöldsins.

Við lesum salinn og breytum flæði eftir þörfum.

Við vinnum náið með tækniaðilum og viðburðastjórum til að tryggja hnökralausa framkvæmd.

Við getum spilað bæði rólegra efni í byrjun kvölds og öflugt dansprogram þegar kemur að hápunkti.

Við vitum að viðburðir þurfa að ganga hnökralaust og við stillum okkur inn á salinn, hópinn og markmiðin.

Fjölbreytt tónlist sem höfðar til allra aldurshópa og skapar jákvæða, sameiginlega upplifun.

Sterk sviðsnærvera án þess að taka yfir – við styðjum viðburðinn en skyggjum ekki á hann.

Reynsla af formlegum og óformlegum viðburðum sem tryggir að við vitum nákvæmlega hvað þarf til að kvöldið verði vel heppnað.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, gæsa- og steggjapartý, hátíðir, einkasamkvæmi, brúðkaupsafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir

Senda fyrirspurn