Friðrik Dór – tónlist sem fyllir sali og sameinar fólk.
Friðrik Dór hefur um árabil verið einn af ástsælustu tónlistarmönnum landsins og komið fram á hundruðum viðburða um allt land. Með fjölda vinsælla laga og sterka tengingu við áhorfendur hefur hann skapað sér einstakan sess í íslensku tónlistarlífi.
Hvort sem um er að ræða árshátíð, bæjarhátíð, fyrirtækaviðburð, tónleika eða einkasamkvæmi skapar Friðrik Dór stemningu sem nær til fólks á öllum aldri. Hann er þekktur fyrir hlýja nærveru á sviði, öfluga rödd og lagaval sem fær gesti til að syngja með frá fyrstu mínútu.
Með mikla reynslu af bæði stórum og smáum viðburðum leggur Friðrik Dór áherslu á fagmennsku, góð samskipti og að hver framkoma sé eftirminnileg upplifun fyrir gesti. Hann aðlagar dagskrána að tilefninu og tryggir að tónlistin passi við stemninguna sem óskað er eftir.
Ef markmiðið er að fá einn vinsælasta og reynslumesta skemmtikraft landsins á viðburðinn er Friðrik Dór öruggur kostur.
brúðkaup, afmæli, gæsa- og steggjapartý, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, hátíðir, útskriftir, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, brúðkaupsafmæli, skírnir