Fröken Selfoss

Starfsfólk á viðburð · Selfoss

Um þjónustuna

Fröken Selfoss – Veisluþjónusta og salir í samstarfi

Fröken Selfoss – Veislusalur og viðburðaaðstaða
Fröken Selfoss er fyrst og fremst veitingastaður, en utan háannatíma er salurinn afar vel fallinn til ýmiss konar viðburða. Þetta á sérstaklega við yfir daginn og á virkum dögum, sem og utan há-sumars og utan föstudags- og laugardagskvölda, nema í undantekningartilfellum.

Í veitingasalnum eru 70 sæti og á barsvæðinu bætast við 20 sæti til viðbótar. Við viðburði er hægt að sitja þéttar en í hefðbundnu borðhaldi, sem hefur ítrekað reynst skapa sérstaklega góða stemmningu og lifandi rými.

Rýmið er ekki eingöngu ætlað formlegu borðhaldi. Veitingastaðurinn var hannaður með fjölbreytileika í huga og hefur með góðum árangri hýst meðal annars standandi smáréttaveislur, erfidrykkjur, fermingar, áramótapartý, steikarhlaðborð, fundi og kynningar. Fyrirkomulagið er alltaf lagað að tilefninu og hópnum.

Salaleiga er innifalin í veitingaverði. Allir matseðlar eru í boði yfir daginn og utan háannatíma. Ef viðburður krefst þess að loka veitingastaðnum að kvöldi eða um helgar eru aðeins valdir veislumatseðlar í boði, lágmark 70 manns, það þarf rúman fyrirvara og þá gildir lágmarksvelta á vínveitingum.

Tækjabúnaður er til staðar og hentar vel fyrir fundi, kynningar og viðburði með dagskrá. Í boði er míkrafón og gott innbyggt hátalarakerfi, með möguleika á uppsetningu skjávarpa. Einnig er hægt að tengja mixer í miðjum salnum, setja upp lítið svið á miðju gólfi og koma fyrir tjaldi eftir þörfum og aðstæðum.

Fjöldatakmörk:

Allt að 80 manns í formlegu borðhaldi (allt borið fram á diskum)

Allt að 90 manns í óformlegu fyrirkomulagi (t.d. fermingar, standandi veislur og pinnaveislur

Aðstaða og þjónusta

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, erfidrykkjur, brúðkaupsafmæli

Senda fyrirspurn