Fröken Selfoss veisluþjónusta

Veisluþjónusta · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Að skipuleggja árshátíð eða fyrirtækjaviðburð á að vera ánægjulegt ferli – ekki streituvaldandi verkefni.

Hjá Fröken Selfoss hjálpum við fyrirtækjum að halda vel heppnaðar veislur með framúrskarandi mat, faglegri þjónustu og hnökralausri framkvæmd, hvort sem um er að ræða litla kvöldverði eða stóra árshátíð.

Við sjáum um skipulagið og framkvæmdina – svo þú getir notið kvöldsins með starfsfólki og samstarfsfólki.

Við komum þangað sem þér hentar
Við veitum veisluþjónustu á fjölbreyttum stöðum, meðal annars:

Á vinnustöðum fyrirtækja

Í veislusölum og einkarýmum

Hjá samstarfsaðilum okkar á Suðurlandi

Úti í náttúrunni, þegar aðstæður leyfa

Við getum einnig aðstoðað með uppsetningu, skipulag flæðis og samhæfingu við staðarhaldara.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, erfidrykkjur, hátíðir, skírnir, brúðkaupsafmæli

Senda fyrirspurn