Heiðmar Eyjólfsson

Tónlist og hljóð · Akranes

Um þjónustuna

Tónlistarmaður - Söngvari sem spilar undir á gítar og píanó.

Ég er tónlistarmaður sem syngur og spilar á gítar. Ég get einnig spilað undir á píanó þegar það hentar betur fyrir meiri fjölbreytni t.d. í athöfnum.
Ég er rúmlega þrítugur og hef vel yfir 10 ára reynslu af því að koma fram, spila og syngja í athöfnum og viðburðum. Er sjálfum mér nægur í undirspili og söng en get að sjálfsögðu einnig komið fram með öðrum sé þess óskað. Veiti persónulega og góða þjónustu, sendi tóndæmi sé þess óskað, t.d. ef brúðhjón hafa ákveðið lag/lög í huga fyrir athöfn þá get ég sent hráa upptöku af mér spila og syngja lagið áður en þau ákveða hvort þau vilji bóka mig. Ég kem sjálfur með hljóðkerfi við minni og meðalstór tilefni.
Brúðkaup, útfarir, stórafmæli, sveitaböll með hljómsveit og alls kyns tónleikar er meðal það sem ég fæst við. Ekki hika við að hafa samband varðandi fyrir frekari upplýsingar.

Hentar fyrir

gæsa- og steggjapartý, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, hátíðir, brúðkaupsafmæli, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir, skírnir, barnaafmæli, afmæli, brúðkaup

Senda fyrirspurn