Salirnir tveir, Hekla og Katla eru jafnir að stærð og lögun. Þeir eru báðir staðsettir á jarðhæð Center Hotel Plaza og bjóða því upp á mjög gott aðgengi gesta. Þeir eru bjartir og hafa skjávarpa, flettitöflu, bréfsefni og þráðlaust net. Hægt er að stilla sölunum tveimur upp á marga vegu en þeir taka hvor um sig allt að 65 manns þegar þeim er stillt upp fyrir móttöku. Hægt er að fá veitingar bornar fram fyrir fundargesti Plaza ef óskað er eftir því.