Herra Hnetusmjör

Upplifanir · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Herra Hnetusmjör

Herra Hnetusmjör er einn vinsælasti tónlistarmaður landsins, þekktur fyrir gríðarlega orku á sviði, stemningu og framúrskarandi tengingu við áhorfendur.

Með fjölbreytta lagaskrá og mikla reynslu af öllum tegundum viðburða hefur Herra Hnetusmjör skapað sér sess sem einn eftirsóttasti tónlistamaður Íslands. Hvort sem um er að ræða árshátíðir, bæjarhátíðir, þorrablót, fyrirtækaviðburði, einkasamkvæmi eða stærri tónleika þá er markmiðið alltaf það sama - að fylla salinn af lífi og tryggja eftirminnilega upplifun.

Herra Hnetusmjör leggur áherslu á fagmennsku, góð samskipti og að laga dagskrána að hverjum viðburði. Með öflugri sviðsframkomu, vinsælum lögum og reynslu af því að lesa stemninguna nær hann að skapa einstaka upplifun fyrir gesti á öllum aldri.

Ef markmiðið er að fá tónlistaratriði sem kemur fólki af stað, heldur stemningunni gangandi og skilur eftir sig eftirminnilega kvöldstund, þá er Herra Hnetusmjör öruggur kostur

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, einkasamkvæmi, hátíðir, brúðkaupsafmæli, útskriftir

Senda fyrirspurn