Í Kórnum er stór veislusalur sem tekur 250 manns í sæti - 300 manns standandi.
Búnaður:
• Allur helsti borðbúnaður fylgir með útleigu nema dúkar. Enn þá er hægt að leigja (sjá verðskrá). Dúkar í boði eru hringlaga og eru 180cm í þvermáli.
• Hljóðkerfi (Talað mál og dinner tónlist), búnaður fyrir fundarhald.
• Salurinn hentar vel fyrir veislur eins og brúðkaupsveislur, fermingaveislur, erfidrykkjur, stórafmæli og skírnarveislur. Einnig er salurinn mjög góður fyrir ráðstefnur og fundi.
• Ýmis búnaður til skreytinga fylgja salnum eins og kertaluktir blómavasar.
• Ávallt skal vera starfsmaður á svæðinu meðan leigutaki er í salnum. Miðast fjöldi starfsmanna eftir fjölda gesta. Leigutaki greiðir starfsmanni/starfsmönnum frá félaginu sérstaklega. - ATH á rauðu dögum er tímakaup starfsfólks hærra á tímann -
• Almennt tekur það starfsmann/menn 2klst að þrífa salinn eftir viðburð og er það hluti af starfsmannakostnaði.
• Aðgangur að rúmgóðu eldhúsi fylgir útleigu með stórum ísskápur, ofn, uppþvottavél ofl.
• Fyrir framan salina er stórt rými, anddyri og salernisaðstaða.
• Mjög gott hjólastóla aðgengi er að salnum.
• Leigutaki skilar salnum eins og hann tók við honum. Greitt er gjald ef leigutaki gengur ekki frá borðum og stólum (sjá gjaldskrá).
• Krafa er gerð um öryggisgæslu á stærri viðburðum.
• !!!! Konfetti er stranglega bannað í húsinu og er gjald tekið fyrir þrifum á því sérstaklega (sjá gjaldskrá).
hátíðir, gæsa- og steggjapartý, brúðkaup, afmæli, skírnir, brúðkaupsafmæli, einkasamkvæmi, erfidrykkjur, útskriftir, ráðstefnur og fyrirtækjaviðburðir