Hús máls og menningar

Veislusalur · Reykjavík

Um þjónustuna

Stórvalsstofa Hús máls og menningar

Velkomin í notalegt og glæsilegt samkomurými þar sem hlýleg hönnun, listaverk og afslappað andrúmsloft skapa einstaka upplifun fyrir gesti. Rýmið hentar vel fyrir afmæli, einkasamkvæmi af öllum tegundum, gæsun, hitting og spilakvöld fjölskyldu eða vina og aðrar sérstakar stundir.

Salurinn rúmar allt að 50 sitjandi gesti eða 80 standandi/sitjandi gesti og býður upp á fjölbreytt setusvæði með notalegum básum, setustofu og opnu samverurými.

Gestum er velkomið að koma með eigin veitingar, en allir drykkir þarf að kaupa á staðnum.

Á annarri hæð er lifandi tónlist frá kl. 20:00–23:00, þar sem gestir geta notið tónlistar og stemningar í fallegu umhverfi á meðan viðburður fer fram í Stórvalsstofu.

Hvort sem um er að ræða formlegan viðburð eða afslappaða samveru býður rýmið upp á hlýlegt og eftirminnilegt umhverfi sem erfitt er að finna annars staðar.

Leigutími er frá kl. 14:00 til 23:30.

Stórvalsstofa er kjörinn staður fyrir þá sem vilja halda eftirminnilegan viðburð í fallegu og einstöku umhverfi í hjarta Reykjavíkur.

Aðstaða og þjónusta

Hentar fyrir

afmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, útskriftir

Senda fyrirspurn