Hvammsvík er tilvalinn staður fyrir viðburði og hópferðir. Á staðnum er að finna gistingu fyrir allt að 42 gesti, sjóböðin, veislusal í hlöðunni og hof.
Við bjóðum upp á frábæra aðstöðu í uppgerðu hlöðunni okkar fyrir allskyns viðburði og hópa til að mynda brúðkaup, hvataferðir, fundi, fyrirlestra, kynningar, heilsurækt, árshátíðir, sitjandi eða standandi borðhald o.fl. Hlaðan hentar fyrir hópa allt að 40 manns og getum við í samstarfi við veisluþjónustu tekið á móti allt að 100 manns.
Sjóböðin geta tekið á móti allt að 154 gestum samtímis þar sem er að finna 8 náttúrulaugar í fjöruborðinu, blaut- og þurrgufu og aðgengi að Atlantshafinu. Veitingastaðurinn Stormur bíður upp á létta rétti og bar.
Gistihúsin í Hvammsvík eru 12 talsins þar sem hægt er að taka á móti allt að 42 gestum í næturgistingu í 19 svefnherbergjum.
brúðkaup, afmæli, brúðkaupsafmæli