Íris & Arnar

Tónlist og hljóð · Höfuðborgarsvæðið

Um þjónustuna

Arnar Jónsson og Íris Hólm hafa starfað lengi sem tónlistarmenn og hafa þau bæði tekið þátt í fjölmörgum tónlistarverkefnum. Verkefni Arnars í gegnum árin eru m.a. Eurovision, Söngvakeppni Sjónvarpsins, Michael Bublé heiðurstónleikar, Frostrósir, Dívur auk fjölmargra annarra verkefna. Meðal verkefna Írisar má nefna Eurovision, Söngvakeppni Sjónvarpsins, Beyoncé heiðurstónleika, Freddie Mercury heiðurstónleika, Jólatónleika Siggu Beinsteins, Frostrósir, Afmælistónleika Gunnars Þórðarsonar auk margra annarra.
Í dag skipa þau dúett og koma fram við hin ýmsu tilefni; brúðkaup, jarðarfarir, skírn, veislum, afmælum, árshátíðum, jólahlaðborðum, fordrykkjum o.fl.

Hentar fyrir

brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, brúðkaupsafmæli, hátíðir, gæsa- og steggjapartý, skírnir

Senda fyrirspurn