Ljósmyndari og tökumaður
Hæ, ég heiti Ívar Eyþórsson og ég sérhæfi mig í brúðkaupsmyndum og myndböndum hér á Íslandi.
Ég legg áherslu á náttúruleg augnablik, góða stemningu og að ná deginum eins og hann raunverulega var, án þess að allt sé of uppstillt eða stíft. Markmiðið mitt er að þið getið verið alveg þið sjálf og notið dagsins, á meðan ég sé um að fanga allt sem skiptir máli.
Hvort sem um er að ræða litlar athafnir úti í náttúrunni eða stærra brúðkaup með fjölskyldu og vinum, þá legg ég mikið upp úr því að gera upplifunina þægilega og afslappaða frá byrjun til enda.
Ég er mjög hands-on, og hjálpa ykkur í gegnum allt ferlið, allt frá pósum og staðsetningum yfir í litlu smáatriðin. Ég segi líka hlutina hreint út og leiðbeini ykkur þegar þarf, þannig að þið þurfið aldrei að vera að velta fyrir ykkur hvað þið eigið að gera fyrir framan myndavélina.
Fyrir mér snýst þetta ekki bara um að taka fallegar myndir heldur að skapa minningar sem ná tilfinningunum, stemningunni og fólkinu eins og það var á þessum degi.
brúðkaup