Karítas Sveina Guðjónsdóttir
Frá því ég var ung hefur mér fundist fátt skemmtilegra en að mynda allt og alla í kringum mig og er það gamall draumur að fá að starfa sem ljósmyndari. Ég hef lengi safnað að mér kunnáttu héðan og þaðan en ákvað svo að skrá mig í nám og útskrifaðist ég úr ljósmyndun við Tækniskólann vorið 2024.
Frá útskrift hef ég starfað við fréttaljósmyndun hjá Morgunblaðinu og mbl.is
Áhugasvið mitt innan ljósmyndunar er enn í nokkurri mótun og mismunandi svið ljósmyndunar heilla mig á ólíka vegu. Allt frá því að grípa augnablikið í sinni raunverulegu mynd til varðveislu og heimildaröflunar yfir í að stilla upp myndefni og vinna í móta það að fullkomnun, hvort hefur sinn sjarma.
afmæli, barnaafmæli, gæsa- og steggjapartý, einkasamkvæmi, brúðkaupsafmæli, skírnir, hátíðir, brúðkaup, erfidrykkjur