Allt frá konfektmola upp í fullbúna veislu.
Okkar markmið er að heilla þig með hollum brauðum sem öll eru sykurlaus, fitulaus og gerlaus.
Við höfum horfið til fortíðar þegar kemur að brauðbakstri og góðum kökum þar sem við notum eingöngu gæða hráefni.
• Súrdeigsbrauð
Okkar markmið er að heilla þig með hollum brauðum sem öll eru sykurlaus, fitulaus og gerlaus.
• AFMÆLI
Við bjóðum upp á fjölmargar tegundir af afmælistertum, myndskreyttar, uppáhalds teiknimyndahetjan fyrir börnin og margt fleira.
• SAUMAKLÚBBUR
Fyrir saumaklúbbana erum við með súpur, heita brauðrétti, snittur, kökur og tertur svo eitthvað sé nefnt.
• FUNDIR
Fundarmeðlætið inniheldur smurðar samlokur og sætabrauð skorið niður á bakka í stærðum sem hægt er að taka í lófann og borða af servéttu.
• Veisluþjónusta
Allt frá konfektmola upp í fullbúna veislu. Veisluþjónustan hefur blómstrað hjá okkur í 15 ár.
• FERMING
Við hjá Kökulist leggjum mikið upp úr því að fermingartertan hvort sem um kransaköku eða marsipantertu er að ræða, sé fermingatertan þín.
• ERFISDRYKKJA
Fyrir erfisdrykkjurnar útbúum við kaffihlaðborð: tertur, kökur, brauðrétti, brauðtertur, snittur, kleinur og allt sem viðskiptavinurinn óskar.
• ÚTSKRIFT
Við hjá Kökulist leggjum mikið upp úr því að tengja skreytingarnar á útskriftartertunni tilefninu þ.e. stútentshúfa fyrir stúdentinn, hamar og sög fyrir smiðinn, tölva fyrir kerfisfræðinginn o.s.frv.
• BRÚÐKAUP
Brúðartertur í miklu úrvali. Við erum til í að elta þig í öllum sérþörfum þínum (prófaðu bara).
• SKÍRN
Oftar en ekki kýs fólk að hafa baby bláa eða baby bleika skreytingu á skírnartertunum. En okkur finnst að þú eigir að ráða líka svolítið hvernig skírnartertan ykkar lítur út.
brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, einkasamkvæmi, skírnir, brúðkaupsafmæli